Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 26. maí 2015 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Aron Sig og Viðar Ari hjá Fjölni til 2016
Aron gerði stórkostlegt mark gegn Val á mánudaginn.
Aron gerði stórkostlegt mark gegn Val á mánudaginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Sigurðarson og Viðar Ari Jónsson eru búnir að framlengja samninga sína við Fjölni um eitt ár eða til 2016.

Fjölni hefur byrjað tímabilið vel í Pepsi-deildinni og er um miðja deild með 8 stig eftir fimm umferðir.

Aron er sóknarmaður en Viðar Ari er bakvörður og hafa þeir byrjað alla leiki Fjölnis á leiktíðinni.

Eini tapleikur liðsins var á KR-velli og gerði liðið 3-3 jafntefli við Val á Vodafonevellinum í síðustu umferð.

Næstu deildarleikir Fjölnis eru á heimavelli gegn nýliðum ÍA og Leikni R.
Athugasemdir
banner
banner