Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 26. nóvember 2014 13:00
Elvar Geir Magnússon
Real Madrid hefur áhuga á Kovacic
Kovacic í leik gegn Stjörnunni.
Kovacic í leik gegn Stjörnunni.
Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur áhuga á króatíska miðjumanninum Mateo Kovacic hjá Ínter en ítalska félagið vill gera nýjan samning við leikmanninn.

Kovacic hefur byrjað tímabilið af krafti í ítalska boltanum en núgildandi samningur hans er til 2017. Inter vill binda þennan tvítuga leikmann til 2019.

Real Madrid er sagt hafa fylgst vel með þróun mála hjá Kovacic.

Corriere dello Sport telur að spænsku risarnir þurfi að bjóða 35 milljónir evra að lágmarki í leikmanninn til að Inter segi já.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner