Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 26. nóvember 2015 19:01
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Liverpool og Bordeaux: Sturridge meiddur
Mynd: Getty Images
Liverpool getur tryggt sig upp úr B riðli Evrópudeildarinnar með sigri á Bordeaux í kvöld.

Bordeaux hefur byrjað tímabil illa, bæði í Evrópu og í Frakklandi, og er á botni riðilsins með þrjú stig eftir fjóra leiki.

Christian Benteke leiðir sóknarlínu heimamanna sem eru án Daniel Sturridge vegna meiðsla á fæti. Þá er Philippe Coutinho ekki í leikmannahópnum.

Jordon Ibe og Roberto Firmino byrja frammi ásamt Belganum stóra og eru James Milner, Joe Allen og Lucas Leiva á miðjunni

Kolo Toure byrjar við hlið Dejan Lovren í hjarta varnarinnar á meðan Nathaniel Clyne og Alberto Moreno spila í bakvarðarstöðunum.




Liverpool: Mignolet, Clyne, Toure, Lovren, Moreno, Lucas, Allen, Milner, Ibe, Firmino, Benteke
Varamenn: Bogdan, Skrtel, Randall, Brannagan, Can, Lallana, Origi

Bordeaux: Carrasco, Contento, Sane, Yambere, Chantome, Poko, Plasil, Rolan, Saivet, Jussie, Crivelli
Athugasemdir
banner
banner