Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 26. nóvember 2015 19:21
Magnús Már Einarsson
Meiðslamartröð Jay Rodriguez heldur áfram
Jay Rodriguez.
Jay Rodriguez.
Mynd: Getty Images
Jay Rodriguez, framherji Southampton, verður frá keppni næstu átta vikurnar.

Rodriguez neyddist til að fara í aðgerð á ökkla í síðustu viku en síðasti leikur hans var gegn Leicester fyrir rúmum mánuði.

Rodriguez sleit krossband í hné í apríl árið 2014 en snéri aftur fyrr á þessu tímabili.

Hann hafði skorað þrjú mörk í tólf leikjunum áður en hann meiddist á ökkla í síðasta mánuði.

Meiðslastaðan hjá Southampton er að öðru leyti góð en enginn annar leikmaður er fjarverandi fyrir leikinn gegn Manchester City um helgina.
Athugasemdir
banner