Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 27. febrúar 2015 08:30
Daníel Freyr Jónsson
Aubameyang og Sahin orðaðir við Inter
Aubameyang gæti farið til Ítalíu.
Aubameyang gæti farið til Ítalíu.
Mynd: Getty Images
Inter er sagt áhuga á framherjanum Pierre-Emerick Aubameyang, leikmanni Borussia Dortmund, og gæti félagið gert tilboð í hann á vormánuðum.

Aubameyang, sem einnig getur spilað á vængnum, hefur skorað 9 mörk í þýsku deildinni í vetur. Hann kom til Dortmund árið 2013 frá St. Etienne í Frakklandi.

Forráðamenn Inter eru sagðir vera að fylgjast með Aubameyang þar sem framtíð Mauro Icardi hjá félaginu er óráðin.

Þá er Inter einnig sagt vera að fylgjast með Nuri Sahi, miðjumanni Dortmund, sem hefur þó einungis komið við sögu í fjórum leikjum á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner