Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 27. maí 2017 09:30
Dagur Lárusson
Willian: Ég mun vera hér á næstu leiktíð
Willian er ánægður hjá Chelsea.
Willian er ánægður hjá Chelsea.
Mynd: Getty Images
Willian, leikmaður Chelsea, hefur staðfest að hann muni vera hjá félaginu á næstu leiktíð þrátt fyrir háværa orðróma sem að segja annað.

Willian hefur mikið verið orðaður við för frá félaginu upp á síðkastið og hefur Manchester United talið vera líklegur áfangastaður en Jose Mourinho var einmitt sá sem að fékk Willian til Chelsea á sínum tíma.

Willian hefur hins vegar blásið á þessar sögusagnir.

„Ég mun vera áfram hjá Chelsea á næstu leiktíð”, sagði Willian í viðtali við Evening Standard.

„Ég er með samning við Chelsea til ársins 2020 og ég er mjög ánægður hér.”,

„Ég á í góðu sambandi við alla þá sem að tengjast félaginu og stuðningsmennina”,

Willian var oft á tíðum að berjast við Pedro um sæti í byrjunarliði Chelsea á leiktíðinni og því var talið að hann væri ekki nógu ánægður hjá félaginu, en svo virðist ekki.


Athugasemdir
banner
banner
banner