Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 27. júlí 2015 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Goal 
Javi Manquillo til Marseille (Staðfest)
Javi Manquillo hér í leik með Atlético Madrid
Javi Manquillo hér í leik með Atlético Madrid
Mynd: Getty Images
Marseille hefur gengið frá lánssamningi á spænska bakverðinum, Javi Manquillo, frá Atletico Madrid.

Manquillo var í láni hjá Liverpool á síðasta tímabili en olli þar miklum vonbrigðum og var tveggja ára lánssamningi hans hjá félaginu, rift eftir aðeins eitt ár.

"Marseille er virtasta félagið í Frakklandi og ég er ánægður að vera kominn hingað," sagði Manquillo.

Hann hefur aðeins leikið 16 leiki fyrir Atletico Madrid síðan hann byrjaði að leika með aðaliðinu árið 2011.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner