Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 27. ágúst 2016 18:34
Jóhann Ingi Hafþórsson
Þýskaland: Gladbach vann Leverkusen
Andre Hahn skoraði í dag.
Andre Hahn skoraði í dag.
Mynd: Getty Images
Borussia M. 2 - 1 Bayer
1-0 Andre Hahn ('45 )
1-1 Joel Pohjanpalo ('79 )
2-1 Lars Stindl ('85 )

Síðasta leik dagsins í þýsku Bundesligunni var að ljúka.

Borussia Munchengladbach vann þá góðan sigur á Bayer Leverkusen. Gladbach liðið komst yfir undir lok fyrri hálfleiks með marki frá Andre Hahn.

Þegar tíu mínútur voru eftir jafnaði Joel Pohjanpalo metin og stefndi allt í jafntefli. Þá kom Lars Stindl og tryggði Gladbach góðan 2-1 sigur.

Þar sem þetta er fyrsta umferð deildarinnar er Gladbach með fullt hús stiga, eins og gefur að skilja.
Athugasemdir
banner
banner