Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 28. febrúar 2015 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Ancelotti: Ég vil þjálfa ítalska landsliðið
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid á Spáni, vill gerast þjálfari ítalska landsliðsins einn daginn.

Ancelotti hefur unnið allt sem hægt er að vinna með félagsliðum en hann hefur þjálfað AC Milan, Juventus, Chelsea, Paris Saint-Germain og Real Madrid.

Hann vill þó þjálfa ítalska landsliðið einn daginn og er mjög spenntur fyrir því tækifæri.

,,Draumur minn er að þjálfa ítalska landsliðið. Ég fæ vonandi að upplifa það því ég vil vinna HM með ítalska landsliðinu," sagði Ancelotti.
Athugasemdir
banner
banner