Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 28. mars 2015 21:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Dunga: Dæmið Neymar á heimsmeistara titlunum
Neymar.
Neymar.
Mynd: Getty Images
Dunga, þjálfari Brasilíu hefur trú á að Neymar geti orðið markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins en segir að eina sem skiptir máli í lok ferilisins er hversu oft hann verður heimsmeistari.

Neymar hefur skorað átta af 17 mörkum liðsins eftir að Dunga tók við þeim í júlí 2014 en Brasilía hefur unnið síðustu sjö leiki sína.

Dunga segir hins vegar að Neymar ætti aðeins að huga að hversu oft hann verður heimsmeistari.

„Við vonum að hann verði markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins og við viljum hjálpa honum að ná því," sagði Dunga.

„Hann skorar mjög mikið þannig það verður ekki vandamál, það skiptir meira máli hversu oft hann verður heimsmeistari."/i>
Athugasemdir
banner
banner
banner