Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 28. mars 2015 19:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Undankeppni EM: Lettar gerðu Íslendingum greiða í Tékklandi
Úr leiknum í dag.
Úr leiknum í dag.
Mynd: Getty Images
Tékkland 1 - 1 Lettland
0-1 Aleksei Visnakovs ('30)
1-1 Vaclav Pilar ('90)

Flestir bjuggust við öruggum sigri Tékka á heimavelli sínum er Lettland kom í hemsókn í dag en annað kom á daginn.

Þrátt fyrir að heimamenn hafi verið mikið mun meira með boltann voru það gestirnir sem komust yfir eftir hálftíma leik en þá skoraði Alleksei Visnakovs.

Allt leit út fyrir gríðarlega óvæntan sigur Lettana en varamaðurinn Vaclav Pilar jafnaði á loka mínútunni og þar við sat.

Úrslitin verða að teljast afar jákvæð fyrir íslenska liðið í baráttunni um toppsæti riðilsins en Tékkar halda toppsætinu og eru með 13 stig á meðan það íslenska liðið er í öðru sæti með 12 stig.
Athugasemdir
banner
banner