Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   þri 28. mars 2017 21:44
Elvar Geir Magnússon
Sverrir: Minn tími mun koma með landsliðinu
Icelandair
Sverrir í leiknum í kvöld.
Sverrir í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst þetta vera flottur leikur hjá liðinu í dag. Við gerðum það sem við höfum verið að gera undanfarið. Við vorum skipulagðir, vinnusamir og skoruðum gott mark," sagði Sverrir Ingi Ingason við Fótbolta.net eftir 1-0 sigur Íslands á Írlandi í kvöld.

Lestu um leikinn: Írland 0 -  1 Ísland

„Írarnir koma 100% í alla leiki og gefa ekki tommu eftir. Við unnum bardagann í dag og það skóp sigurinn. Við vorum sterkir í návígjum og gáfum aldrei færi á okkur. Það var lykillinn að sigri í dag."

Sverrir fékk tækifærið í hjarta varnarinnar í kvöld og var maður leiksins. Sverrir hefur verið þriðji miðvörður landsliðsins en hann er að reyna að brjóta sér leið inn í liðið.

„Kári og Raggi hafa spilað undanfarin fjögur ár og verið frábær. Við höfum unnið flesta leiki og það hefur ekki verið ástæða til að breyta. Þjálfarinn spilar á því liði sem hann telur að sé best hverju sinni. Ég er ungur og minn tími mun koma með landsliðinu. Ég er ekki að stressa mig á því. Á meðan ég held áfram að þróa mig sem leikmaður þá mun ég spila fullt af landsleikjum í framtíðinni. Það er ekki stress hvort það komi eftir sex eða átján mánuði," sagði Sverrir en vonast hann ekki eftir að fá sénsinn gegn Króatíu í júní?

„Auðvitað er maður alltaf klár í að spila ef kallið kemur. Ég held áfram að spila með Granada á Spáni og reyni að koma í toppstandi í leikinn í júní. Ef við náum í þrjú stig í júní þá erum við í bullandi séns á að ná þessu toppsæti," sagði Sverrir.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner