Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 28. apríl 2015 15:30
Elvar Geir Magnússon
Leikmaður í Belgíu þarf á kraftaverki að halda
Gregory Mertens er hér til vinstri.
Gregory Mertens er hér til vinstri.
Mynd: Getty Images
Belgíski varnarmaðurinn Gregory Mertens hjá Sporting Lokeren þarf á kraftaverki að halda eftir að hafa fengið hjartaáfall í varaliðsleik gegn Genk.

Mertens er 24 ára en hann er í lífshættu á sjúkrahúsi þar sem hann er í dái.

Lokeren hefur tilkynnt að Mertens hafi komist í gegnum hjartarannsókn fyrir tímabilið sem framkvæmd var samkvæmt skipun UEFA.

Mertens er fyrrum U21-landsliðsmaður Belgíu en hann hefur leikið 15 leiki á tímabilinu eftir að hafa komið til Lokeren frá Cercle Brugge.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner