Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 28. apríl 2016 14:50
Magnús Már Einarsson
Agbonlahor gefur frá sér fyrirliðabandið
Mynd: Getty Images
Gabriel Agbonlahor hefur ákveðið að stíga til hliðar sem fyrirliði Aston Villa.

Hinn 29 ára gamli Agbonlahor er í banni hjá Aston Villa í augnablikinu eftir að myndir birtust af honum að reykja vatnspípu á djamminu.

Agbonlahor hafði áður verið sendur í sérstakt æfingaprógram eftir að menn hjá Aston Villa töldu að hann væri ekki í nægilega góðu formi.

Hinn 29 ára gamli Agonblahor hefur nú ákveðið að gefa fyrirliðabandið frá sér.

„Ég verðskulda ekki að sinna þessu hlutverki áfram. Þetta var mikill heiður fyrir mig og það er sárt að hafa misst bandið," sagði Agbonblahor.
Athugasemdir
banner
banner
banner