Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 28. maí 2016 20:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Carrasco jafnaði fyrir Atletico
Framlengt á San Siro
Carrasco jafnar hér metin
Carrasco jafnar hér metin
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid er búið að jafna metin í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Real Madrid.

Markið skoraði Yannick Ferreira-Carrasco eftir frábæra sendingu frá Juanfran frá hægri.

Það þarf því að framlengja leikinn líkt og þegar liðin mættust í úrslitum árið 2014. Þá hafði Real Madrid 4-1.

Atletico fékk tækifæri til þess að skora áður en Carrasco gerði það. Liðið fékk nefniega vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleik eftir að Pepe braut klaufalega á Fernando Torres. Antoine Griezmann skaut þó í slána.

Hægt er að sjá myndband af vítinu og markinu hjá Atletico á vef Vísis og með því að smeall á tenglana hér að neðan.

Carrasco jafnar

Griezmann klúðrar víti
Athugasemdir
banner
banner
banner