ÍBV hefur rekið Tryggva Guðmundsson úr starfi aðstoðarþjálfara en þetta kemur fram á vefsíðunni 433.is
Samkvæmt heimildum 433 var leikmönnum ÍBV tjáð þetta fyrir leikinn við Breiðablik í dag að búið væri að leysa Tryggva frá störfum.
Tryggvi var aðstoðarmaður Jóhannesar Harðarsonar sem tók sér frí frá þjálfun liðsins af fjölskylduástæðum.
Tryggvi átti að stýra ÍBV í dag ásamt Inga Sigurðssyni en nafn Tryggva var ekki á skýrslu leiksins.
Opinbera útskýring ÍBV er að Tryggvi sé veikur en fjölmiðlafulltrúi ÍBV sagði það við fjölmiðlamenn í dag. Það ku vera lygi samkvæmt þessari frétt.
Ingi stýrði ÍBV til 2-0 sigurs gegn Blikum. Skoðaðu skýrsluna úr leiknum.
Athugasemdir