Heimild: 433.is
433 segir hann hafa mætt undir áhrifum áfengis á æfingu
Áfram heldur fréttaflutningur af fjarveru Tryggva Guðmundssonar í leik ÍBV og Breiðabliks í Pepsi-deildinni í dag.
Tryggvi átti að stýra ÍBV ásamt Inga Sigurðssyni í leiknum en var ekki á skýrslu. Eyjamenn segja að Tryggvi hafi verið veikur.
Tryggvi átti að stýra ÍBV ásamt Inga Sigurðssyni í leiknum en var ekki á skýrslu. Eyjamenn segja að Tryggvi hafi verið veikur.
433.is fullyrti í kvöld að Tryggvi hefði verið rekinn en Eyjamenn segja þann fréttaflutning rangan.
„Samkvæmt öruggum heimildum 433.is kom Tryggvi til æfingu í gær undir áhrifum áfengis. Tryggvi var sendur heim af æfingunni og stýrði ÍBV ekki í dag í sigri gegn Blikum," segir svo í nýrri frétt 433.
Tryggvi vildi ekki tjá sig við 433 þegar ritstjóri vefsins náði í hann í kvöld.
Athugasemdir