Hermanni Hreiðarssyni þjálfara Fylkis var létt í leikslok fyrsta sigurleik liðsins í Pepsideildinni í ár!
"Mér er heldur betur létt og bara öllu liðinu. Við vorum orðnir þreyttir á að spila og taka enga punkta, í mesta lagi einn punkt. Það var frábært að ná þessum fyrsta sigri enda vorum við búnir að dansa í leðjunni í svolítinn tíma svo það var gott að taka stökkið uppúr."

Leikurinn réðst með marki sem varamennirnir báru ábyrgð á, innáskiptingarnar tókust fullkomlega hjá Fylki. Voru þessar þrjár skiptingar teiknaðar upp fyrir leik?
"Það var þreyta í mannskapnum, enda stutt frá síðasta leik. Við urðum að brjóta upp og gera eitthvað af viti og hver og einn einasti skilaði sínu".
Hvernig gengur þjálfaranum að halda fókus hjá mannskapnum í öllu EM-fárinu?
"Ég fann einhvern neista eftir síðasta leik. Við áttum í kjölfarið frábært spjall inni í klefa og ég sá bara í augum manna og á fasinu að menn vildu þetta, langaði hrikalega og snúa blaðinu við og sýna hvað í liðinu byggi".
Nánar er rætt við Hermann í viðtalinu sem að fylgir fréttinni.
Athugasemdir