Viðræður milli QPR og Kolbeins Sigþórssonar eru enn í gangi samkvæmt enskum fjölmiðlum.
Viðræðurnar hafa dregist á langinn og voru komnar af stað sögur um að þær hefðu siglt í strand og QPR myndi snúa sér annað.
Viðræðurnar hafa dregist á langinn og voru komnar af stað sögur um að þær hefðu siglt í strand og QPR myndi snúa sér annað.
Harry Redknapp segir þó að hann vilji enn tryggja sér þennan 24 ára íslenska landsliðsmann.
„Þetta hefur tekið lengri tíma en við vonuðumst eftir. Við náðum samkomulagi við félagið en höfum ekki náð samningim við leikmanninn. Við þurfum að bíða og sjá," segir Redknapp.
Athugasemdir