Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 28. ágúst 2014 13:00
Magnús Már Einarsson
Martin Keown: Bestu kaup sumarsins að fá Gylfa
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Mynd: Getty Images
Martin Keown, fyrrum varnarmaður Arsenal, telur að Swansea hafi gert bestu kaup sumarsins með því að krækja í Gylfa Þór Sigurðsson frá Tottenham.

Gylfi hefur byrjað tímabilið af krafti með liði Swansea.

Keown svaraði spurningum hjá lesendum Daily Mail í dag og þar var hann spurður að því hvað væru bestu kaup tímabilsins.

,,Fyrir tímabilið hefði ég líklega sagt Alexis Sanchez en hann hefur ekki byrjað af krafti," sagði Keown.

,,Þegar við tölum um að byrja vel þá tel ég að Gylfi Sigurðsson hafi smollið frábærlega inn í lið Swansea og hann er betri en margir vilja meina. Hann hefur byrjað tímabilið vel og þetta eru góð kaup hjá Swansea."
Athugasemdir
banner
banner