Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fös 28. ágúst 2015 18:00
Magnús Már Einarsson
Gunni Borgþórs: Mun afslappaðra andrúmsloft
Gunnar lætur í sér heyra á hliðarlínunni.
Gunnar lætur í sér heyra á hliðarlínunni.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Gunnar Borgþórsson, þjálfari Selfyssinga, segir að leikmenn liðsins séu reynslunni ríkari eftir tap gegn Stjörnunni í bikarúrslitum í fyrra.

Þessi lið mætast annað árið í röð í úrslitum Borgunarbikarsins en leikurinn fer fram á Laugardalsvelli klukkan 16:00 á morgun.

„Vikurnar fyrir leik fann maður að spennustigið hækkaði. Ég finn mun á liðinu í ár. Það er mun afslappaðra andrúmsloft. Þeir leikmenn sem eru að koma nýjir inn í liðið eru að fá aðstoð frá öðrum leikmönnum," sagði Gunnar.

Gunnar viðurkennir að undirbúningurinn sé ekki sá sami fyrir þennan leik eins og aðra leiki.

„Undirbúningurinn er aðeins öðruvísi. Það er bæjarhátíð á Selfossi um helgina og stelpurnar láta sjá sig þar og gefa eiginhandaráritanir og svona. Við verðum aðeins á hótelinu á Selfossi fyrir leikinn í tengslum við flott verkefni þar og við erum að gera aðeins meira úr þessu."

Gunnar segir að vel verði fagnað á Selfossi ef bikarinn kemur yfir brúnna á laugardaginn.

„Það er búið að auglýsa móttöku, hvernig sem fer, og við verðum að taka bikarinn með okkur," sagði Gunnar.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner