Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 28. ágúst 2016 22:06
Ívan Guðjón Baldursson
Fabregas: Conte treystir á mig
Mynd: Getty Images
Cesc Fabregas hefur ekki fengið mikinn spilatíma á fyrstu vikum tímabilsins undir stjórn Ítalans Antonio Conte.

Fabregas hefur verið orðaður við brottför frá Chelsea en er búinn að slá á þá orðróma með nokkrum Twitter færslum þar sem hann segir að samband hans og stjórans sé gott og að þeir treysti á hvorn annan.

„Ég og stjórinn eigum í mjög góðu sambandi, sem er öfugt við það sem hefur verið skrifað í fjölmiðlum undanfarið," skrifaði Fabregas á Twitter.

„Stjórinn hefur ALDREI beðið mig um að fara og hefur sagt við mig að hann treysti á mig, eins og ég treysti á hann.

„Ég mun halda áfram að gera mitt besta fyrir Chelsea. Mitt eina markmið er að hjálpa liðinu að vinna fótboltaleiki."

Athugasemdir
banner
banner
banner