Heimild: Football Italia
Var einungis fimm mánuði Tyrklandi
Galatasaray hefur rekið Cesare Prandelli frá félaginu einungis fimm mánuðum eftir að hann tók við félaginu.
Það var mikil pressa á þessum fyrrum stjóra ítalska landsliðsins á undanförnum vikum, en Galatasaray hefur ekki staðist væntingar í deildinni á tímabilinu. Þá er liðið á botni riðils síns í Meistaradeildinni og hefur fengið á sig 15 mörk í einungis fimm leikjum.
Liðið situr í 3. sæti tyrknesku deildarinnar eftir að hafa legið 3-0 á heimavelli gegn Trabzonspor um helgina.
Búist er við að Brasilíumaðurinn Claudio Taffarel taki við af Prandelli.
Athugasemdir