Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 29. maí 2015 09:00
Daníel Freyr Jónsson
Hull losar sig við sex leikmenn
Paul McShane er án félags.
Paul McShane er án félags.
Mynd: Getty Images
Hull féll úr ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi og hafa forráðamenn liðsins þegar hafið undirbúning fyrir lífið í Championship-deildinni.

Í gær var það tilkynnt að sex leikmenn væru á förum frá félaginu þar sem samningar þeirra yrðu ekki endurnýjaðir.

Miðvörðurinn Paul McShane er líklega eftirsóttasti bitinn af þeim sem fara á frjálsri sölu, en Liam Rosenior og Maynor Figueroa eru einnig farnir frá félaginu.

Þá eru þeir Yannick Sagbo, Steve Harper og Joe Dudgeon allir samningslausir og munu finna sér nýja vinnuveitendur í sumar.
Athugasemdir
banner
banner