Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 30. mars 2015 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Dunga: Brasilía hefur ekkert unnið ennþá
Dunga ofmetnast ekki.
Dunga ofmetnast ekki.
Mynd: Getty Images
Dunga, landsliðsþjálfari Brasilíu, segir að sínir menn megi ekki ofmetnast þrátt fyrir góða byrjun undir hans stjórn.

Dunga tók við brasilíska landsliðinu eftir HM 2014 og stýrði sínum mönnum til 1-0 sigurs gegn Síle í gær. Komu þeir í kjölfarið á glæstum sigrum gegn Argentínu og Frakklandi, en þjálfarinn er þó enn með báða fætur á jörðinni.

,,Við höfum ekkert unnið ennþá," sagði Dunga á blaðamannafundi.

,,En við lítum vel út. Við erum að byggja upp gott landslið sem er að komast yfir hindranir og vinnur vel sem lið."
Athugasemdir
banner
banner
banner