Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 30. ágúst 2014 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Einn efnilegasti leikmaður Frakklands á leið til Roma
Mynd: Getty Images
Ítalska stórliðið AS Roma er við það að ganga frá kaupum á Adrien Rabiot, leikmanni PSG í Frakklandi en ítalskir fjölmiðlar greina frá þessu.

Rabiot, sem er 19 ára gamall miðjumaður, er einn efnilegasti miðjumaður heims um þessar mundir en Roma er þar að fjárfesta í mögnuðum leikmanni.

Roma hefur náð samkomulagi við PSG um Rabiot en kaupverðið er talið nema um 15 milljónum evra.

Roma á einungis eftir að semja við Rabiot en hann hefur verið orðaður við Arsenal undanfarnar vikur.
Athugasemdir
banner
banner