Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   sun 30. ágúst 2015 20:43
Arnar Daði Arnarsson
Ásgeir Börkur: Aukaspyrnurnar hafa ekki nýst okkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrirliði Fylkis, Ásgeir Börkur Ásgeirsson þurfti að sætta sig við eitt stig úr leik liðsins gegn ÍA á heimavelli í kvöld.

Fylkisliðið hefur einungis unnið tvo sigra í níu leikjum á heimavelli í sumar. Sem er afspyrnu léleg tölfræði.

Lestu um leikinn: Fylkir 0 -  0 ÍA

„Þetta er helvíti súrt að geta ekki drullast til að vinna leikina hér heima," sagði Ásgeir sem var að mörguleyti sáttur með spilamennsku liðsins í leiknum.

„Við vorum að halda boltanum ágætlega en vorum ekkert að skapa okkur aragrúa af færum en að mínu viti fengum við þrjá deddara (dauðafæri)."

„Það hefur verið vandamál okkar þegar við erum að spila á móti liðunum fyrir neðan okkur, þá höfum við verið að ströggla. Mér fannst við halda boltanum ágætlega en náðum ekki að koma honum í netið."

Fylkisliðið fékk helling af aukaspyrnum í leiknum sem liðið nýtti sér enganveginn. Eitthvað sem menn hljóta að klóra sér í hausnum yfir.

„Ég hef verið að æfa aukaspyrnunar á æfingum og ég býst við að fá að taka þær í næsta leik. Ég veit ekki hvað er að. Þetta hefur verið svona í allt sumar. Aukaspyrnurnar hafa ekki nýst okkur, utan af velli og rétt fyrir utan teiginn."

Viðtalið í heild sinni við Ásgeir Börk er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner