Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, tilkynnir í dag hópinn fyrir heimaleikina gegn Finnum og Tyrkjum í undankeppni HM.
Finnar koma í heimsókn á Laugardalsvöll á fimmtudaginn og sunnudaginn 9. október verða andstæðingarnir Tyrkir.
Finnar koma í heimsókn á Laugardalsvöll á fimmtudaginn og sunnudaginn 9. október verða andstæðingarnir Tyrkir.
Kolbeinn Sigþórsson verður líklega ekki með í leikjunum og þá hefur landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson einnig verið að glíma við meiðsli.
Hópurinn verður tilkynntur klukkan 13:15 í dag en Fótbolti.net verður með beina útsendingu frá því í samstarfi við sporttv.is.
Fréttir úr Laugardalnum birtast einnig hér á síðunni sem og á Twitter síðu Fótbolta.net.
Athugasemdir