Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 31. ágúst 2014 15:43
Jóhann Ingi Hafþórsson
Shinji Kagawa aftur í Dortmund (Staðfest)
Shinji Kagawa í leik með Manchester United.
Shinji Kagawa í leik með Manchester United.
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund hefur staðfest að Shinji Kagawa sé kominn til félagsins á ný.

Kagawa fór til Manchester United fyrir tveimur árum síðan frá Dortmund en er kominn aftur í Bundesliguna.

Kagawa skrifaði undir fjögurra ára samning en hann hefur ekki náð sér almennilega á strik með Manchester United og hafa verið orðrómar allt sumar um að hann myndi yfirgefa félagið.

Kaupverðið er óuppgefið en það er talið vera í kringum 8 milljónir evra.
Athugasemdir
banner
banner