Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 31. ágúst 2014 16:50
Jóhann Ingi Hafþórsson
Torres til AC Milan á tveggja ára lán (Staðfest)
Fernando Torres sást á leik Milan gegn Lazio.
Fernando Torres sást á leik Milan gegn Lazio.
Mynd: Getty Images
Fernando Torres er kominn til AC Milan á tveggja ára lánssamning frá Chelsea en hann stóðst læknisskoðun í dag.

Spánverjanum hefur gengið afar illa síðan hann fór til Chelsea fyrir 50 milljónir punda frá Liverpool en mun nú vera hjá Milan liðinu til 2016.

Chelsea fékk til sín Loic Remy fyrr í dag í staðin fyrir Torres.

Milan var aftur á móti að leita af sóknarmanni eftir að Mario Balotelli fór til Liverpool.

Athugasemdir
banner
banner