Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 31. ágúst 2016 11:16
Magnús Már Einarsson
Alfreð og Jeffs halda áfram með ÍBV
Ian Jeffs.
Ian Jeffs.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net bendir allt til þess að Alfreð Elías Jóhannsson og Ian Jeffs stýri ÍBV áfram út tímabilið.

Bjarni Jóhannsson hætti óvænt sem þjálfari ÍBV um þarsíðustu helgi.

Alfreð Elías Jóhannsson og Ian Jeffs tóku tímabundið við liðinu og stýrðu því í 2-1 tapi gegn Víkingi R. um síðustu helgi og í 1-1 jafntefli gegn Þrótti R. á sunnudaginn.

Eyjamenn höfðu greint frá því að þjálfaramálin myndu liggja fyrir í vikunni og samkvæmt heimildum Fótbolta.net verður lendingin sú að Alfreð og Jeffs klári tímabilið.

Alfreð var áður aðstoðarþjálfari ÍBV en hann þjálfar 2. flokk karla hjá félaginu. Jeffs er leikmaður ÍBV en hann þjálfar einnig meistaraflokk kvenna.

ÍBV er í 10. sæti í Pepsi-deild karla með 18 stig, fjórum stigum frá fallsvæðinu þegar fimm umferðir eru eftir.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner