Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25113 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR15.07.2025, 08:59

Henderson til Brentford (Staðfest)

Brentford hefur tryggt sér enska miðjumanninn Jordan Henderson, fyrrum fyrirliða Liverpool. Hann er mættur aftur í ensku úrvalsdeildina og skrifaði undir tveggja ára samning við Brentford. Henderson er 34 ára og lék síðast fyrir Ajax. Hann var hjá Liverpool í tólf ár og vann ensku úrvalsdeildina, Meistaradeildina, FA-bikarinn, tvo deildabikara, Samfélagsskjöldinn, Ofurbikarinn og HM félagsliða með félaginu.

FRÉTTIR14.07.2025, 18:07

Modric kominn til AC Milan (Staðfest)

AC Milan er búið að staðfesta félagaskipti Luka Modric til félagsins. Þessi króatíska goðsögn gerir eins árs samning við ítalska stórveldið, með möguleika á eins árs framlengingu.

FRÉTTIR14.07.2025, 17:57

Álvaro Carreras til Real Madrid (Staðfest)

Álvaro Carreras er búinn að skrifa undir sex ára samning við Real Madrid og er fjórði leikmaðurinn sem er keyptur fyrir aðalliðið í sumar, eftir Trent Alexander-Arnold, Dean Huijsen og Franco Mastantuono.

FRÉTTIR14.07.2025, 15:08

Árni Guðna hættur með Fylki (Staðfest)

Árni Freyr Guðnason er ekki lengur þjálfari meistaraflokks karla hjá Fylki. Þetta kom fram í tilkynningu Fylkis rétt í þessu. Fylkir er í níunda sæti Lengjudeildarinnar eftir tólf umferðir sem eru mikil vonbrigði, markmið Fylkis var að komast aftur upp í Bestu deildina eftir að hafa fallið úr henni síðasta haust. Fylkir réði Árna síðasta haust, eftir að hann og Jóhann Birnir Guðmundsson höfðu verið valdir þjálfarar ársins í Lengjudeildinni í fyrra eftir frábært tímabil með ÍR, og gerði við hann þriggja ára samning. Það byrjaði vel hjá Fylki undir stjórn Árna, liðið lék vel í vetur og fór alla leið í úrslitaleik Lengjubikarsins. Fylkir tók fjögur stig út úr fyrstu tveimur leikjum sínum en einungis sex úr síðustu tíu leikjum. Árni var dæmdur í tveggja leikja bann eftir að hafa fengið rautt spajd gegn ÍR í þarsíðustu umferð og var því ekki á hliðarlínunni þegar Fylkir tapaði 3-1 gegn Selfossi á föstudag.

FRÉTTIR14.07.2025, 10:45

Roony Bardghji í Barcelona (Staðfest)

Barcelona hefur krækt í sænska undrabarnið Roony Bardghji frá FC Kaupmannahöfn í Danmörku. Kaupverðið er um 2 milljónir evra fyrir þennan stórefnilega leikmann. Bardghji skrifar undir samning við Barcelona sem gildir til ársins 2029.

FRÉTTIR14.07.2025, 10:35

FHL bætir við sig tveimur leikmönnum (Staðfest)

FHL er langneðsta liðið í Bestu deild kvenna og hefur ekki enn náð í stig í sumar, en félagið hefur samt sem áður ekki gefist upp. FHL var nefnilega að bæta við sig tveimur erlendum leikmönnum fyrir seinni hluta tímabilsins. Þetta eru þær Taylor Hamlett og Isabelle Gilmore sem eru báðar 23 ára gamlar.

FRÉTTIR14.07.2025, 08:30

Frá Norwich til Porto (Staðfest)

Porto hefur staðfest komu Borja Sainz frá Norwich en félagið kaupir hann á 14,5 milljónir punda. Sainz er 24 ára gamall spænskur vængmaður. Hann gekk til liðs við Norwich frá Giresunspor í Tyrklandi árið 2023. Hann lék 82 leiki fyrir Norwich og skoraði 27 mörk.

FRÉTTIR12.07.2025, 16:30

Orkun Kokcu til Besiktas (Staðfest)

Tyrkneski miðjumaðurinn Orkun Kokcu var í dag kynntur hjá Besiktas í heimalandinu en hann kemur frá Benfica í Portúgal.

FRÉTTIR12.07.2025, 15:38

Elías Már skrifar undir í Kína (Staðfest)

Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson hefur gert eins árs samning við kínverska félagið Meizhou Hakka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu á Instagram í dag.

FRÉTTIR12.07.2025, 11:30

Malik Tillman til Leverkusen (Staðfest)

Bandaríski landsliðsmaðurinn Malik Tillman hefur gengið frá félagaskiptum sínum frá PSV til Bayer Leverkusen. Hann gerir samning til 2030.

FRÉTTIR12.07.2025, 10:55

Diljá Ýr til Brann (Staðfest)

Íslenska landsliðskonan Diljá Ýr Zomers er gengin til liðs við norska félagið Brann frá Leuven.

FRÉTTIR12.07.2025, 09:00

Porto gengur frá kaupum á Samu (Staðfest)

Portúgalska stórveldið FC Porto er búið að festa kaup á framherjanum öfluga Samu Aghehowa, sem er sá leikmaður sem hækkaði hvað mest í verði í heimsfótboltanum í vetur.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.