Todibo í West Ham (Staðfest)

West Ham staðfestu komu Todibo til félagsins rétt í þessu. Hann kemur á láni út tímabilið en West Ham getur keypt hann eftir tímabilið á 35 milljónir punda.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25143 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

West Ham staðfestu komu Todibo til félagsins rétt í þessu. Hann kemur á láni út tímabilið en West Ham getur keypt hann eftir tímabilið á 35 milljónir punda.

David de Gea hefur skrifað undir samning við Fiorentina en hann kemur á frjálsri sölu.

KR hefur gengið frá kaupum á Guðmundi Andra Tryggvasyni. Hann kemur frá Val og skrifar undir fimm ára samning í Vesturbænum. KR tilkynnti um komu Andra til félagsins í færslu á samfélagsmiðlum rétt í þessu. Hann er þriðji leikmaðurinn sem skrifar undir hjá KR í þessari viku en allir eiga þeir það sameiginlegt að vera fæddir árið 1999, eru uppaldir í KR og hafa allir skrifað undir fimm ára samning. Hinir tveir eru þeir Ástbjörn Þórðarson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson.
Hákon Atli Aðalsteinsson er genginn í raðir Dalvíkur/Reynis á láni frá KA út tímabilið. Hákon er 19 ára varnarmaður sem lék með Völsungi á síðasta tímabli og hefur verið í leikmannahópi KA á tímablinu. Hann kom við sögu í einum deildarleik og tveimur bikarleikjum fyrri hluta sumarsins.
Það voru að eiga sér athyglisverð félagaskipti í kvennaboltanum því Ariela Lewis er komin til Keflavíkur frá Aftureldingu.
Miðjumaðurinn Dani Olmo er genginn í raðir Barcelona frá RB Leipzig í Þýskalandi. Kaupverðið er 55 milljónir evra sem getur hækkað um sjö milljónir til viðbótar með árangurstengdum greiðslum.
Sóknarmaðurinn Deniz Undav er genginn í raðir Stuttgart frá Brighton. Þetta var staðfest í dag, en Undav er dýrasti leikmaður í sögu Stuttgart. Kaupverðið er um 32 milljónir evra.
Stjarnan tryggði sér í dag markvörð fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna því Halla Margrét Hinriksdóttir hefur fengið félagaskipti frá Breiðabliki yfir í Stjörnuna. Halla Margrét er markvörður sem lék síðast með Aftureldingu á undirbúningstímabilinu fyrir tímabilið 2022 en var þar á undan markvörður Stjörnunnar seinni hluta tímabilsins 2021. Hún er 29 ára og var varamarkvörður fyrir Telmu Ívarsdóttur seinni hluta síðasta tímabils.

Ítalski framherjinn Mateo Retegui er genginn til liðs við Atalanta frá Genoa.

Kristín Dís Árnadóttir hefur skrifað undir samning við Breiðablik en hún mun leika með liðinu út sumarið.

Keflavík hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna því Simona Rebekka Meijer er gengin í raðir félagsins og komin með leikheimild fyrir næsta leik liðsins. Meijer er landsliðskona Norður-Makedóníu en er einnig með tengingar til Hollands. Hún á að baki fjóra landsleiki, lék með landsliðinu í undankeppni EM í sumar.
Portúgalski varnarmaðurinn Pepe tilkynnti í dag að skórnir væru farnir upp í hillu, leikmannaferli hans væri lokið. Pepe er 41 árs og voru hans síðustu leikir á ferlinum með portúgalska landsliðinu. Pepe tilkynnti tíðindin með kveðjumyndbandi á Instagram. Hann lék 878 leiki á sínum ferli og vann 34 titla. Hann lék með Maritimo, Porto, Real Madrid, Besiktas og lauk svo ferlinum með fimm tímabilum hjá Porto. Hann vann Meistaradeildina þrisvar, portúgölsku deildina fjórum sinnum og spænsku deildina þrisvar. Hann vann EM og Þjóðadeildina með landsliðinu; lék alls 141 landsleik og skoraði átta mörk. Hann var maður leiksins í úrslitaleik EM 2016 þegar Portúgalir lögðu lið Frakka að velli.
Chelsea hefur tryggt sér varnarmanninn Aaron Anselmino frá Boca Juniors en hann er keyptur á 15,6 milljónir punda. Þessi nítján ára strákur hefur skrifað undir sjö ára samning við Chelsea en mun verða áfram hjá argentínska félaginu út komandi tímabil sem hluti af samkomulaginu. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Boca 2023 og hefur spilað tíu leiki alls.
Danski sóknarmaðurinn William Osula hefur verið keyptur til Newcastle frá Sheffield United. Hann er 21 ársins og er kaupverð 15 milljónir punda. Hann skoraði þrjú mörk í 31 aðalliðsleik fyrir Sheffield, sem féll úr úrvalsdeildinni á síðustu tímabili. Hann á fimm U21 landsleiki fyrir Danmörku.

Patrik Orri Pétursson, leikmaður Gróttu, hefur framlengt samning sinn við félagið út tímabilið 2026.

Kristín Dís Árnadóttir er á heimleið í Breiðablik en þetta herma heimildir Fótbolta.net. Hún er sem stendur án félags og kemur til Breiðabliks á frjálsri sölu.

26.07.24 12:44
Kristín Dís yfirgefur Bröndby (Staðfest)

Alfie Gilchrist er búinn að ganga í raðir Sheffield United á láni. Gilchrist kemur frá úrvalsdeildarliðinu Chelsea hann er uppalinn þar.

Argentíski framherjinn Alejo Veliz hefur gengið til liðs við La Liga liðsins Espanyol. Veliz er tvítugur en hefur spilað í spænsku úrvalsdeildinni áður.

Tim Ream hefur yfirgefið Fulham, félagið greindi frá því á samfélagsmiðlum í dag. Hann átti innan við ár eftir af samningi sínum við félagið og hefur verið þar í níu ár. Hann er genginn í raðir Charlotte FC í bandarísku MLS deildinni. Ream kom til Fulham frá Bolton árið 2ö15 og lék yfir 300 leiki í öllum keppnum. Það eru breytingar í varnarlínu Fulham því Tosi Adarabioyo fór til Chelsea í sumar. Fulham krækti í Jorge Cuenca frá Villarreal og skoða hvort hægt sé að fá Diego Carlos frá Aston Villa.
Argentínumaðurinn hæfileikaríki Valentin Carboni hefur gengið í raðir franska liðsins Marseille. Þessi nítján ára sóknarmiðjumaður var á láni hjá Monza á síðasta tímabili og vakti athygli, hann skoraði tvö mörk og átti fjórar stoðsendingar. Hann fer til Marseille á lánssamningi með möguleika á kaupum eftir tímabilið. Inter vill samt ekki sleppa tökunum alfarið á Carboni og er með sérstaka klásúlu um að geta keypt hann til baka. Hjá Marseille mun Carboni spila undir stjórn Roberto De Zerbi og hefur fengið treyju númer 7.