Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25171 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR06.12.2023, 17:30

Zaragoza verður leikmaður Bayern næsta sumar (Staðfest)

Bayern Munchen hefur fest kaup á spænska kantmanninum Bryan Zaragoza. Hann er leikmaður Granada og mun ganga í raðir þýska félagsins næsta sumar. Hann er 22 ára og lék sinn fyrsta landsleik í október. Hann gekk í raðir Granada árið 2019 og var fyrsta árið hluti af unglingaliði félagsins. Hann hefur verið á mála hjá félaginu allan sinn meistaraflokksferil til þessa, en var á láni hjá El Ejido tímabilið 2020-21. Í 52 deildarleikjum hefur hann skorað tíu mörk.

FRÉTTIR06.12.2023, 14:00

Esther Rós í Stjörnuna (Staðfest)

Stjarnan tilkynnti í dag að Esther Rós Arnarsdóttir væri gengin í raðir félagsins. Esther er 26 ára framherji sem var í þrjú tímabil hjá FH eftirað hafa komið frá uppeldisfélaginu Breiðabliki. Hún spilaði einungis einn leik á sínu fyrsta tímabili með FH, sumarið 2022 skoraði hún fimm mörk og á liðinni leiktíð skoraði hún þrjú mörk.

FRÉTTIR05.12.2023, 12:17

Sheff Utd búið að reka Heckingbottom og ráða Wilder (Staðfest)

Enska úrvalsdeildarfélagið Sheffield United er búið að reka Paul Heckingbottom og ráða fyrrum stóra félagsins, Chris Wilder, í hans stað. Abdullah prins eigandi félagsins hefur staðfest þetta. Sheffield United er á botni ensku úrvalsdeildarinnar með fimm stig, liðið hefur tapað ellefu af fyrstu fjórtán leikjunum.

FRÉTTIR05.12.2023, 07:00

Toni verður spilandi þjálfari Aftureldingar (Staðfest)

Það eru stór tíðindi úr herbúðum kvennadeildar Aftureldingar sem var að krækja í varnarmanninn öfluga Toni Deion Pressley sem lék með Breiðabliki í sumar og þótti öflug í Bestu deildinni.

FRÉTTIR04.12.2023, 22:30

Michael Duff rekinn frá Swansea (Staðfest)

Velska félagið Swansea City, sem leikur í ensku Championship deildinni, er búið að reka Michael Duff úr stjórastólnum eftir fimm mánuði í starfi.

FRÉTTIR04.12.2023, 14:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Þvæla, blóraböggull og rokið úr viðtali

Arnar Gunnlaugsson er orðaður við Norrköping, Ten Hag ætlar að ræða við Rashford, Robbie Keane rauk úr viðtali og Freyr er ósáttur við að danskir sparkspekingar geri Gylfa að blóraböggli. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.

FRÉTTIR03.12.2023, 17:21

Baldvin Borgars nýr þjálfari Árbæjar (Staðfest)

Árbær sem leikur í 3. deildinni hefur tilkynnt um nýjan þjálfara. Baldvin Már Borgarsson hefur tekið við sem aðalþjálfari. <i>„Baldvin var aðstoðaðarþjálfari hjá Ægi Þorlákshöfn og fór með þá úr 4. deild alla leið upp í Lengjudeildina. Þannig hann er kunnugur því að koma liðum upp um deild,"</i> segir í tilkynningu Árbæinga. Gylfi Tryggvason sem var þjálfari Árbæinga er tekinn við sem aðstoðarþjálfari kvennaliðs HK. Baldvin lét nýlega af störfum sem aðstoðarþjálfari Ægismanna en í Árbænum mun hann vera með Nemanja Lekanic sér til aðstoðar. Árbær hafnaði í þriðja sæti 3. deildar í sumar og setur stefnuna á að komast upp í 2. deild á næsta ári.

FRÉTTIR01.12.2023, 13:00

Viktor Andri sá fyrsti sem Venni sækir í Þrótt (Staðfest)

Viktor Andri Hafþórsson er genginn í raðir Þróttar Reykjavíkur en hann kemur til félagsins frá Keflavík. Viktor er 22 ára og uppalinn í Fjölni. Hann kom við sögu í átján leikjum í Bestu deildinni í sumar og skoraði tvö mörk á sínu fyrsta og eina tímabili með Keflavík.

FRÉTTIR29.11.2023, 16:46

Böðvar yfirgefur Trelleborg (Staðfest)

Böðvar Böðvarsson hefur yfirgefið sænska félagið Trelleborg en samningur hans rann út eftir að tímabilinu lauk. Hann var í tvö ár hjá Trelleborg en áður hafði hann verið í eitt ár hjá Helsingborg. Alls haf því árin verið þrjú í Svíþjóð en hann kom til landsins eftir að hafa spilað með pólska félaginu Jagiellonia.

FRÉTTIR29.11.2023, 14:30

Daði Freyr áfram hjá FH (Staðfest)

Markvörðurinn Daði Freyr Arnarsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við FH og er nú bundinn félaginu til 2025. Daði er 25 ára og var varamarkvörður FH stærstan hluta síðasta tímabils. Hann varð þó aðalmarkvörður eftir meiðsli Sindra Kristins Ólafssonar og fékk hrós fyrir sína innkomu.

FRÉTTIR28.11.2023, 16:10

Ole Martin hættur hjá KR (Staðfest) - Verður aðalþjálfari í Noregi

Ole Martin Nesselquist, sem var aðstoðarmaður Rúnars Kristinssonar hjá KR á síðasta tímabili, verður samkvæmt heimildum Fótbolta.net ekki áfram hjá félaginu. <b>Uppfært 16:10:</b> KR birti rétt í þessu tilkynningu þar sem tíðindin voru staðfest. Tilkynninguna má sjá neðst í fréttinni. Þar kemur fram að Ole Martin hafi óskað eftir leyfi frá KR til að gerast aðalþjálfari hjá liði í heimalandinu Noregi. Ole Martin er þrítugur Norðmaður sem var ráðinn til KR fyrir ári síðan. Hann var aðstoðarþjálfari liðsins og sagði Gregg Ryder, nýr þjálfari KR, að <a href="https://www.fotbolti.net/news/28-10-2023/gregg-ryder-nyr-thjalfari-kr-eg-er-med-svart-og-hvitt-i-blodinu#:~:text=Ole%20Martin%20l%C3%ADka%20a%C3%B0sto%C3%B0ar%C3%BEj%C3%A1lfari.%20Hann%20er%20h%C3%A9rna%20enn%C3%BE%C3%A1%20og%20ver%C3%B0ur%20%C3%BEa%C3%B0." target="_blank">Ole Martin yrði áfram hjá félaginu.</a>

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.