Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25095 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR07.02.2026, 23:00

Jacquet meiddist illa á öxl

Franski varnarmaðurinn Jérémy Jacquet, sem Liverpool keypti á lokadegi janúargluggans, varð fyrir alvarlegum meiðslum á öxl og verður frá keppni næstu mánuðina.

FRÉTTIR07.02.2026, 08:45

James til Minnesota (Staðfest) - Fór beint á NBA leik

Kólumbíski landsliðsmaðurinn James Rodríguez hefur skrifað undir samning við bandaríska MLS-félagið Minnesota United. Um er að ræða stuttan samning sem gildir framyfir HM í sumar. James kemur á frjálsri sölu en strax eftir að hafa skrifað undir skellti hann sér á leik með Minnesota Timberwolves gegn New Orleans Pelicans (115-119) í NBA-deildinni í körfubolta. Þar fékk hann höfðinglegar móttökur. Rodriguez er orðinn 34 ára en hann hefur verið án félags síðan um áramótin þegar hann yfirgaf Leon í Mexíkó. Minnesota hafnaði 4. sæti Vesturdeildar MLS á síðustu leiktíð en tapaði í 2. umferð úrslitakeppninnar. <i>„HM er ástæðan fyrir því að ég er kominn hingað. Minnesota sýndi mér mestan áhuga og vildi mest fá mig. Ég ætla að sýna mínar bestu hliðar fyrir liðið,"</i> segir James sem hefur spilað fyrir Real Madrid, Bayern München, Everton og mörg fleiri lið á ferli sínum.

FRÉTTIR07.02.2026, 07:30

Sara og Isabelle í Fram (Staðfest)

Fram var að styrkja sig fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna með tveimur nýjum leikmönnum og einni samningsframlengingu.

FRÉTTIR06.02.2026, 13:41

FH fær þrítugan sænskan miðvörð (Staðfest)

FH tilkynnti rétt í þessu að sænski miðvörðurinn Tobias Carlsson væri búinn að gera tveggja ára samning við félagið. Hann er þrítugur og kemur frá sænska félaginu Sirius þar sem hann spilaði í þrjú tímabil. Alls á hann að baki 59 leiki í sænsku úrvalsdeildinni. Hann hefur spilað allan sinn feril í Svíþjóð. Hann er uppalinn hjá Grebbestads, fór svo til Varbergs, næst Häcken og hefur verið hjá Sirius frá 2023. Hann lék ellefu leiki tímabilið 2023, þrjá leiki 2024 þar sem meiðsli settu strik í reikninginn, og níu leiki á síðasta tímabili.

FRÉTTIR06.02.2026, 07:00

Harley Willard í Ægi (Staðfest)

Englendingurinn Harley Willard hefur samið um að spila með nýliðum Ægis í Lengjudeildinni í sumar en félagið greinir frá þessu á heimasvæði sínu á Facebook.

FRÉTTIR05.02.2026, 22:53

André aftur í ÍR (Staðfest)

Varnar- og miðjumaðurinn André Solórzano er mættur aftur í ÍR rúmum sex árum eftir að hafa spilað síðast með félaginu en þetta tilkynna ÍR-ingar á samfélagsmiðlum í kvöld.

FRÉTTIR05.02.2026, 15:45

Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi

Í gær var Böðvar Böðvarsson kynntur sem nýr leikmaður ÍA eftir óvænta atburðarás þar sem honum var tilkynnt að hans væri ekki þörf hjá FH, hans uppeldisfélagi. Böddi kíkti í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og ræddi um skiptin en óhætt er að segja að þau hafi skapað japl, jaml og fuður í Hafnarfirðinum. Böddi segir að viðskilnaðurinn við FH hafi alls ekki verið eins og hann hafði hugsað sér. <i>„Það opnast alltaf aðrar dyr og þær galopnuðust upp á Skaga. Ég er mjög þakklátur fyrir að vera kominn þangað,"</i> segir Böddi. Er hann að fara í illu úr Hafnarfirðinum? <i>„Nei ég myndi nú ekki segja það. Ég fór og kvaddi Davíð og Vidda (Davíð Þór Viðarsson yfirmann fótboltamála og Viðar Halldórsson formann) upp í Krika í gær. Ég á eftir að kveðja strákana en býst við að gera það á mánudaginn."</i>

FRÉTTIR05.02.2026, 15:30

Ívar Logi í KA (Staðfest)

KA hefur krækt í Ívar Loga Jóhannesson frá Hetti. Ívar Logi skrifar undir þriggja ára samning við KA. Hann er 18 ára miðjumaður sem kom við sögu í 18 leikjum með Hetti/Hugin í 2. deild í fyrra og þremur leikjum í Fótbolti.net bikarnum. Samstarf KA og Hattar hefur verið gott, félögin eru með sameiginlegt lið í 2. flokki og KA Ívar Logi er ekki fyrsti ungi leikmaðurinn sem hefur komið upp hjá Hetti síðustu ár og í kjölfarið samið við KA.

FRÉTTIR05.02.2026, 10:49

Telma til Inter (Staðfest)

Telma Ívarsdóttir er gengin í raðir ítalska félagsins Inter á láni frá skoska félaginu Rangers út þetta tímabil. Hjá Inter hittir hún fyrir tvo leikmenn úr íslenska landsliðinu, markvörðinn Cecilíu Rán Rúnarsdóttir og miðjumanninn Karólínu Leu Vilhjálmsdóttir. Kaupmöguleiki fylgir lánssamningnum sem gildir út 30. júní.

FRÉTTIR04.02.2026, 21:12

Kári heim í Fylki (Staðfest)

Kantmaðurinn Kári Sigfússon er kominn aftur heim í Fylki en þetta var tilkynnt á Instagram-síðu Fylkismanna í kvöld.

FRÉTTIR04.02.2026, 13:43

Böddi gerir tveggja ára samning við ÍA (Staðfest)

ÍA tilkynnti rétt í þessu að Böðvar Böðvarsson væri búinn að gera tveggja ára samning við ÍA. Hann kemur til félagsins frá uppeldisfélaginu, FH. Fótbolti.net sagði frá því á mánudag að Böðvar væri á leið í ÍA. Böðvar er þrítugur vinstri bakvörður sem á að baki fimm A-landsleiki, lék erlendis sem atvinnumaður í Danmörku, Póllandi og Svíþjóð og varð Íslandsmeistari með FH tímabilin 2015 og 2016.

FRÉTTIR04.02.2026, 12:14

Halldór Jón og Hilmar yfirgefa Fylki (Staðfest)

Halldór Jón Sigurður Þórðarson og Hilmar Þór Kjærnested Helgason verða ekki með Fylki á komandi tímabili. Þetta hefur Fótbolti.net fengið staðfest. Samningur Halldórs Jóns við Fylki rann út eftir síðasta tímabil og er ljóst að hann verður ekki áfram í Árbænum. Meiðsli settu strik í reikninginn síðasta sumar en hann náði einungis að spila sjö Lengjudeildarleiki og skoraði tvö mörk í þeim leikjum. Halldór Jón er fjölhæfur leikmaður, hefur spilað í bakverði, á kantinum og sem fremsti maður á sínum ferli. Hann er uppalinn hjá Fram og hefur einnig leikið með Hetti, Aftureldingu, Víkingi, ÍR, Gróttu og ÍBV á sínum ferli. Hann er fæddur árið 1996 og varð Íslands- og bikarmeistari með liði Víkings 2021.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.