Lea Björt Kristjánsdóttir er búin að skipta um félag og hefur skrifað undir samning við Grindavík/Njarðvík eftir sjö ár með Þrótti Reykjavík.
Lea Björt er fædd um aldamótin og hefur á undanförnum árum leikið í bandaríska háskólaboltanum samhliða því að spila með Þrótti í Bestu deildinni.
Lea er uppalin hjá Val og á alls 86 KSÍ leiki að baki fyrir meistaraflokk, þar af 55 í Bestu deildinni.
„Knattspyrnudeildir Grindavíkur og Njarðvíkur bjóða Leu hjartanlega velkomna til liðsins og hlakkar okkur til að sjá hana í Bestu deildinni með liðinu í sumar!" segir meðal annars í tilkynningu frá Grindavík/Njarðvík.
Grindavík/Njarðvík komst upp úr Lengjudeildinni í fyrra og leikur því í Bestu deildinni komandi sumar.
Athugasemdir



