Serge Gnabry, leikmaður Bayern München, verður áfram hjá Bayern til 2028, en hann skrifaði undir framlengingu á samningi sínum í dag.
Gnabry er þrítugur vængmaður sem hefur verið fastamaður í liði Bayern síðan 2018.
Hann gekk í raðir félagsins árinu áður en var lánaður til Hoffenheim.
Áður hafði hann spilað með Arsenal, WBA og Werder Bremen, en það var hjá síðastnefnda liðinu sem hann kom sér á kortið er hann gerði 11 mörk í 27 leikjum á einu tímabili.
Samningur Gnabry hjá Bayern var að renna út í sumar en félagið hefur nú framlengt við hann til 2028.
Á átta árum hjá Bayern hefur hann unnið fimmtán titla og einu sinni verið valinn í lið tímabilsins.
?2??0??2??8???
— FC Bayern München (@FCBayern) February 5, 2026
???? Sichert euch heute -????????% auf alle Gnabry-Produkte mit dem Code „????????????????????“ ?? https://t.co/XIVIm9HAhW pic.twitter.com/TcUAnEuRms
Athugasemdir



