Fram var að styrkja sig fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna með tveimur nýjum leikmönnum og einni samningsframlengingu.
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir er búin að skrifa undir tveggja ára samning við félagið eftir að hafa sýnt mikil gæði á láni frá Breiðabliki síðustu tvö árin.
Sara er fædd 2005 og skoraði 2 mörk í 7 leikjum í Bestu deildinni í fyrra en missti af stærsta hluta tímabilsins vegna háskólanáms í Bandaríkjunum. Hún á tvo leiki að baki fyrir U19 landslið Íslands.
Isabelle Rose Gilmore er þá komin til Fram úr röðum FHL. Hún er fjölhæfur varnarmaður, fædd 2002, sem spilaði ellefu leiki með FHL í Bestu deild kvenna á seinni hluta síðustu leiktíðar.
Að lokum er Karen Dögg Hallgrímsdóttir, fædd 2008, búin að framlengja samning sinn til tveggja ára. Hún er uppalin hjá Fram og kom við sögu í tveimur leikjum með liðinu á Reykjavíkurmótinu í vetur.
Athugasemdir




