Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 19:47
Brynjar Ingi Erluson
Fulham lánar markvörð til Feyenoord (Staðfest)
Mynd: Fulham
Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham hefur lánað markvörðinn Steven Benda til hollenska félagsins Feyenoord út yfirstandandi leiktíð.

Benda er 27 ára gamall Þjóðverji sem hefur spilað á Englandi síðustu átta ár.

Hann var 19 ára gamall þegar hann gekk í raðir Swansea árið 2017 þar sem hann lék í sex ár áður en hann var keyptur til Fulham.

Síðustu ár hefur hann ekki fengið mörg tækifæri til að sanna sig hjá Fulham, en Benda hefur ekki enn spilað deildarleik og aðeins fengið að spreyta sig í fjórum bikarleikjum.

Benda fær nú tækifærið spila að spila í sterkri deild en hann er mættur til Feyenoord á láni út tímabilið og mun því spila undir stjórn Robin van Persie.

Feyenoord er í öðru sæti hollensku deildarinnar með 39 stig, en þó langt frá því að vera í titilbaráttu enda er topplið PSV heilum 17 stigum fyrir ofan þá.


Athugasemdir
banner
banner