Alex Oxlade-Chamberlain er genginn til liðs við Skotlandsmeistara Celtic en hann skrifaði undir samning út þessa leiktíð.
Uxinn er 32 ára gamall miðjumaður sem ólst upp hjá Southampton áður en hann fór til Arsenal árið 2011.
Þar lék hann í sex ár þar sem hann vann enska bikarinn þrisvar sinnum áður en hann var keyptur til Liverpool fyrir 35 milljónir punda árið 2017.
Englendingurinn vann flest allt sem hægt er að vinna á stærsta sviðinu, þar á meðal Meistaradeild Evrópu og ensku úrvalsdeildina, en hann eyddi sex árum þar áður en hann fór til Besiktas í Tyrklandi.
Hann rifti við Besiktas á síðasta ári og hefur síðustu mánuði æft með Arsenal, en hefur nú fundið sér nýtt félag. Hann skrifaði í dag undir samning við Skotlandsmeistara Celtic út þessa leiktíð, en þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu.
Einnig er ákvæði í samningnum sem gerir félaginu kleift að framlengja samning leikmannsins um eitt ár.
?? We are delighted to announce the signing of Alex Oxlade-Chamberlain, who has joined the Club on a contract until the summer with an option for a further year, subject to international clearance.
— Celtic Football Club (@CelticFC) February 7, 2026
???? Welcome to Celtic, Alex ????#WelcomeAlex | #CelticFC????
Athugasemdir


