Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
   fim 05. febrúar 2026 22:53
Brynjar Ingi Erluson
André aftur í ÍR (Staðfest)
Lengjudeildin
 André Solórzano er hér ásamt Sölva Haraldssyni, formanni meistaraflokksráðs karla hjá ÍR
André Solórzano er hér ásamt Sölva Haraldssyni, formanni meistaraflokksráðs karla hjá ÍR
Mynd: ÍR
Varnar- og miðjumaðurinn André Solórzano er mættur aftur í ÍR rúmum sex árum eftir að hafa spilað síðast með félaginu en þetta tilkynna ÍR-ingar á samfélagsmiðlum í kvöld.

Solórzano er 31 árs gamall og kom fyrst til ÍR-inga árið 2019 en fór frá félaginu árið 2020.

Árið 2021 samdi hann við Hött/Huginn þar sem hann hefur verið fastamaður ásamt því að þjálfa yngri flokka félagsins við góðan orðstír. Alls á hann 166 leiki og 4 mörk fyrir ÍR og Hött/Huginn í öllum keppnum.

Hann er nú kominn aftur til ÍR-inga en hann skrifaði undir samning sem gildir til næstu tveggja ára.

Ásamt því að spila mun hann þjálfa yngri flokka félagsins.

Góð viðbót við hópinn hjá ÍR sem var nálægt því að komast í umspil um sæti í Bestu deildina á síðustu leiktíð. Liðið hafnaði í 6. sæti með 37 stig, jafnmörg og Keflvíkingar sem fóru í umspilið á betri markatölu en Keflvíkingar enduðu síðan á því að tryggja sér sæti í Bestu deildina.
Athugasemdir
banner
banner