Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
   fim 05. febrúar 2026 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: KA 
Ívar Logi í KA (Staðfest)
Mynd: KA
KA hefur krækt í Ívar Loga Jóhannesson frá Hetti. Ívar Logi skrifar undir þriggja ára samning við KA.

Hann er 18 ára miðjumaður sem kom við sögu í 18 leikjum með Hetti/Hugin í 2. deild í fyrra og þremur leikjum í Fótbolti.net bikarnum.

Samstarf KA og Hattar hefur verið gott, félögin eru með sameiginlegt lið í 2. flokki og KA Ívar Logi er ekki fyrsti ungi leikmaðurinn sem hefur komið upp hjá Hetti síðustu ár og í kjölfarið samið við KA.

Úr tilkynningu KA
Ívar Logi er spennandi leikmaður sem er með góða tækni og er vel spilandi. Þrátt fyrir ungan aldur lék hann 18 af 22 leikjum meistaraflokks Hattar/Hugins síðasta sumar auk þess að leika með 2. flokksliði KA/Dalvíkur/KF/Hattar/Hamrannar.

Ívar Logi er metnaðarfullur leikmaður sem er duglegur að æfa aukalega og hefur sú vinna skilað sér vel í vetur þar sem hann hefur sýnt miklar framfarir.

Við erum ákaflega ánægð með komu hans í KA og bjóðum hann hjartanlega velkominn í gult og blátt.
Athugasemdir
banner
banner
banner