Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25195 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR24.03.2023, 18:07

Nagelsmann rekinn og Tuchel tekinn við (Staðfest)

<p>FC Bayern hefur staðfest þjálfaraskipti innan félagsins. Julian Nagelsmann er rekinn og tekur Thomas Tuchel við stöðu hans sem aðalþjálfari langsigursælasta félags Þýskalands.</p>

FRÉTTIR24.03.2023, 12:30

Daði Bergs úr Kórdrengjum í 5. deild (Staðfest)

Daði Bergsson, sem uppalinn er hjá Þrótti, hefur fengið félagaskipti í SR og getur því leikið með liðinu gegn Hamri í C-deild Lengjubikarnum í kvöld. Daði var leikmaður Kórdrengja í Lengjudeildinni í fyrra en er nú kominn í B-riðil 5. deildar.

FRÉTTIR22.03.2023, 12:30

Mesut Özil leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Mesut Özil tilkynnti í dag að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna og ferlinum væri því lokið. Özil er 34 ára og var á samningi hjá Istanbul Basaksehir í Tyrklandi. Hann kom aðeins við sögu í átta leikjum á tímabilinu, missti mikið út vegna bakmeiðsla. Hann kallar þetta gott á þessum tímapunkti þrátt fyrir að tveir mánuðir séu eftir af tímabilinu.

FRÉTTIR22.03.2023, 06:00

Eygló Erna í KR (Staðfest)

<p>Eygló Erna Kristjánsdóttir hefur skrifað undir eins árs samning við KR en hún kemur til liðsins frá Hamri.</p>

FRÉTTIR21.03.2023, 16:00

Sevilla búið að reka Sampaoli (Staðfest)

Sevilla hefur staðfest að félagið sé búið að reka Jorge Sampaoli úr stjórastóli liðsins. Liðið er sem stendur aðeins tveimur stigum frá fallsvæðinu í spænsku úrvalsdeildinni.

FRÉTTIR21.03.2023, 08:58

Hodgson tekur við Crystal Palace aftur (Staðfest)

Crystal Palace hefur ráðið Roy Hodgson aftur til starfa, en félagið staðfestir þetta í tilkynningu núna í morgunsárið. Paddy McCarthy, sem stýrði Palace gegn Arsenal um liðna helgi, verður aðstoðarþjálfari Hodgson.

FRÉTTIR20.03.2023, 16:00

Ægir fær Þorgeir frá Magna (Staðfest)

Ægir tilkynnti í dag að Þorgeir Ingvarsson væri genginn í raðir félagsins, kemur frá Magna á Grenivík. Þorgeir er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst bakvörð, miðju og jafnvel brugðið sér í sóknina.

FRÉTTIR20.03.2023, 09:13

Hamren rekinn frá Álaborg (Staðfest)

Búið er að reka Erik Hamren, fyrrum landsliðsþjálfara Íslands, úr starfi þjálfara hjá AaB í Danmörku. AaB frá Álaborg lék gegn Randers á heimavelli í gær og tapaði 0-1. Var það síðasti leikur Hamren við stjórnvölinn.

FRÉTTIR19.03.2023, 08:00

Ægir fær tvo á láni frá Fjölni (Staðfest)

Daníel Smári Sigurðsson og Baldvin Þór Berndsen spila með Ægi í Lengudeildinni í sumar á láni frá Fjölni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ægismönnum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.