Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 21. mars 2023 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Víkingur Ólafsvík sækir spænskan markvörð (Staðfest)
Aitor Gonzalez.
Aitor Gonzalez.
Mynd: Aðsend
Víkingur Ólafsvík hefur samið við spænska markvörðinn Aitor Gonzalez um að hann muni spila með félaginu í sumar.

Aitor, sem er 28 ára gamall, er reynslumikill markvörður sem hefur komið víða við í neðri deildunum á Spáni.

Hann er væntanlegur til landsins í vikunni og ætti að vera gjaldgengur þegar Víkingur Ólafsvík mætir KV í Lengjubikar á laugardag.

„Við bjóðum Aitor velkominn til Ólafsvíkur!" segir í tilkynningu Ólsara.

Víkingur Ó. hafnaði í sjöunda sæti 2. deildar á síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner