Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 20. mars 2023 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ægir fær Þorgeir frá Magna (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Ægir
Ægir tilkynnti í dag að Þorgeir Ingvarsson væri genginn í raðir félagsins, kemur frá Magna á Grenivík.

Þorgeir er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst bakvörð, miðju og jafnvel brugðið sér í sóknina.

Hann skrifar undir tveggja ára samning í Þorlákshöfn.

„Félagið bindur miklar vonir við Þorgeir og að hann komi með sína Lengjudeildar reynslu inn í hópinn," segir í tilkynningu Ægis.

Um helgina tilkynnti liðið um komu Daníels Smára og Baldvins Berndsen frá Fjölni á láni.

Komnir
Anton Fannar Kjartansson frá Breiðabliki
Atli Rafn Guðbjartsson frá Selfossi
Baldvin Þór Berndsen á láni frá Fjölni
Benedikt Darri Gunnarsson frá Val
Daníel Smári Sigurðsson á láni frá Fjölni
Emil Ásgeir Emilsson frá Víkingi R.
Hrvoje Tokic frá Selfossi
Jordan Tyler frá Aftureldingu
Jóhannes Karl Bárðarson frá Víkingi (á láni)
Marko Panic frá HK
Stefán Þór Hannesson frá Fram (á láni)
Torfi Már Markússon frá Létti
Þorgeir Ingvarsson frá Magna

Farnir
Arilíus Óskarsson í Stokkseyri
Ágúst Karel Magnússon í Þrótt R.
Djordje Panic til Serbíu
Þorkell Þráinsson í Stokkseyri
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner