Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 21. mars 2023 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sevilla búið að reka Sampaoli (Staðfest)
Jorge Sampaoli.
Jorge Sampaoli.
Mynd: EPA
Sevilla hefur staðfest að félagið sé búið að reka Jorge Sampaoli úr stjórastóli liðsins.

Liðið er sem stendur aðeins tveimur stigum frá fallsvæðinu í spænsku úrvalsdeildinni.

Julen Lopetegui var rekinn frá Sevilla í október á síðasta ári og var Sampaoli ráðinn í hans stað.

Honum tókst ekki að bæta árangur liðsins eins og vonast hafði verið eftir. José Luis Mendilibar tekur við, en hann er 62 ára gamall og hefur stýrt mörgum félögum á Spáni - nú síðast Alaves.

Framundan eru mikilvægir leikir hjá Sevilla og ekki síst eru það leikir gegn Manchester United í átta-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner