FRÉTTIR02.02.2026, 10:33
Njarðvík heldur áfram að þétta raðirnar fyrir komandi átök í Lengjudeildinni því Hrafn Guðmundsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Hann er sóknarsinnaður leikmaður sem uppalinn er hjá Aftureldingu. Hann samdi við Stjörnuna síðasta vetur eftir að hafa verið hjá KR og var á láni hjá KFA síðasta sumar. Hrafn skoraði í æfingaleik með Njarðvík fyrir rúmri viku síðan og lék aftur með liðinu í gær í Lengjubikarnum gegn ÍR.
Hann kemur á frjálsri sölu frá Stjörnunni en hann rifti samningi við Garðbæinga í upphafi árs.
Njarðvík hefur styrkt hópinn sinn frá síðasta tímabili. Eiður Aron Sigurbjörnsson, Bragi Karl Bjarkason, Guy Smit, Aron Einarsson og Felix Mathaus komu til félagsins fyrr í vetur.
FRÉTTIR02.02.2026, 10:29
Norski miðjumaðurinn Sverr Nypan er kominn aftur til Manchester City eftir að hafa verið á láni hjá Middlesbrough í Championship-deildinni fyrri hluta tímabils.
Í tilkynningu frá Middlesbrough segir að um sameiginlega ákvörðun hjá félögunum sé að ræða en þessi hæfileikaríki 19 ára leikmaður náði ekki að sýna sínar bestu hliðar hjá Boro.
Hann lék alls 22 leiki fyrir félagið í öllum keppnum.
City keypti Nypan frá Rosenborg fyrir 12,5 milljónir punda síðasta sumar og hann gerði fimm ára samning. City segir að leikmaðurinn snúi nú aftur til félagsins þar sem Pep Guardiola og starfslið fylgist með þróun hans.
FRÉTTIR02.02.2026, 10:24
Gunnar Jónas Hauksson hefur framlengt samning sinn við Vestra og hefur skrifað undir tveggja ára áframhaldandi samning við bikarmeistarana.
Gunnar varð samningslaus eftir tímabil og var hann orðaður við Njarðvík, Gróttu, HK og Þór, ásamt því að hafa æft með Fram.
Hann er 26 ára fjölhæfur leikmaður sem getur spilað sem bakvörður, kantmaður og á miðsvæðinu.
Gunnar lék 25 leiki í Bestu deildinni á síðustu leiktíð ásamt því að spila stóra rullu í fræknum bikarsigri liðsins.
FRÉTTIR02.02.2026, 10:03
Kolbeinn Finnsson hefur gengið í raðir norska félagsins Valerenga á láni frá Utrecht út tímabilið. Lánssamningurinn gildir til 30. júní en norska félagið er með kaupákvæði í samningnum.
FRÉTTIR02.02.2026, 09:44
Brajan Gruda leikmaður Brighton hefur gengið í raðir þýska Bundesligufélagsins RB Leipzig á láni frá Brighton út tímabilið.
Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, segir að Gruda hafi viljað meiri spiltíma og hann hafi ekki getað lofað honum því seinni hluta tímabilsins.
<i>„Þessi lánssamningur er góð lausn fyrir alla aðila. Þetta gefur honum tækifæri á að þróa sig áfram. Við óskum honum góðs gengis út tímabilið,"</i> segir Hurzeler.
RB Leipzig er í fimmta sæti þýsku deildarinanr en stöðutöfluna má sjá hér fyrir neðan.
FRÉTTIR01.02.2026, 21:50
Ítalska stórveldið Juventus staðfesti félagaskipti Jérémie Boga skömmu fyrir upphafsflautið í leik liðsins gegn Parma í Serie A.
FRÉTTIR01.02.2026, 20:37
Willum Þór Willumsson er búinn að skrifa undir samning hjá NEC Nijmegen í efstu deild í Hollandi.
FRÉTTIR01.02.2026, 19:54
Spænski þjálfarinn Javi Gracia er farinn frá Watford eftir tæpa fjóra mánuði í starfi.
FRÉTTIR01.02.2026, 16:34
Franski markvörðurinn Mike Maignan verður áfram hjá AC Milan eftir að félaginu tókst að gera langtímasamning við hann. Maignan verður með nýja samningnum launahæsti leikmaður félagsins ásamt nokkrum stjörnum.
FRÉTTIR01.02.2026, 11:47
Þýski markvörðurinn Stefan Ortega er genginn til liðs við Nottingham Forest frá Man City. Kaupverðið gæti orðið allt að 500 þúsund pund en hann skrifar undir samning út tímabilið.
FRÉTTIR01.02.2026, 08:00
Ítalska A-deildarfélagið Pisa hefur sparkað þjálfaranum Alberto Gilardino eftir aðeins rúma sex mánuði í starfi en þetta tilkynnti félagið eftir 3-1 tapið gegn Sassuolo í gær.
FRÉTTIR31.01.2026, 12:25
Guy Smit er genginn til liðs við Njarðvíkur en hann kemur frá Vestra þar sem hann varð bikarmeistari með liðinu á síðasta tímabili. Hann skrifar undir samning sem gildir út árið 2027.
Smit er þrítugur Hollendingur en hann kom fyrst hingað til lands árið 2020 til að spila með Leikni. Hann hjálpaði liðinu að komast upp úr Lengjudeildinni.
FRÉTTIR31.01.2026, 11:30
Chelsea hefur kalla Kendry Paez til baka úr láni frá franska liðinu Strasbourg og lánað hann strax aftur til argentíska liðsins River Plate.
FRÉTTIR31.01.2026, 06:00
Þróttur R. var að krækja í bandarískan miðjumann fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna.
FRÉTTIR31.01.2026, 06:00
Víðir Garði var að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi sumar með lánsmanni frá Keflavík.
FRÉTTIR31.01.2026, 06:00
Máni Dalstein Ingimarsson er kominn aftur heim til Dalvíkur/Reynis og gerir tveggja ára samning við uppeldisfélagið.
FRÉTTIR30.01.2026, 22:48
Hull City er búið að krækja í tvo öfluga lánsmenn á lokadögum janúargluggans.
FRÉTTIR30.01.2026, 20:19
Miðjumaðurinn öflugi Lucas Paquetá er kominn aftur til uppeldisfélagsins Flamengo í Brasilíu.
FRÉTTIR30.01.2026, 19:57
Sóknarmaðurinn Evann Guessand hefur verið tilkynntur sem nýr leikmaður Crystal Palace.
FRÉTTIR30.01.2026, 17:00
Ítalski vængmaðurinn Lorenzo Insigne er genginn í raðir Pescara en hann hefur verið án félags frá því í sumar er hann rifti samningi sínum við Toronto í MLS-deildinni.