01.03.18 - 18:00
Magnús Már Einarsson
Eyþór Örn og Sigurjón Már í Vængi Júpíters (Staðfest)

Sigurjón Már Markússon í leik með Fjölni í fyrra.

Mynd: Raggi Óla

Vængir Júpíters hafa fengið tvo þá Sigurjón Markússon og Eyþór Örn Þorvaldsson til liðs við sig fyrir átökin í 3. deildinni í sumar.
Sigurjón er tvítugur varnamaður sem kemur á láni frá Fjölni.
Sigurjón lék einn leik í Pepsi-deildinni í fyrra en félagaskipti hans er hluti af öflugu samstarfi milli Fjölnis og Vængja Júpíters.
Eyþór Örn er sóknarmaður sem kemur til Vængjanna frá ÍR. Eyþór
lék 8 leiki fyrir ÍR í Inkasso deildinni í fyrra.
Vængir Júpíters voru í toppbaráttu í 3. deildinni í fyrra en liðið lagði Þrótt Vogum 5-3 í fyrsta leik í Lengjubikarnum um síðustu helgi.