Fotbolti.net
01.03.18 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Hlynur Örn í Njarðvík (Staðfest)

Hlynur í leik með Fram í fyrra.

Hlynur í leik með Fram í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nýliðar Njarðvíkur í Inkasso-deildinni hafa fengið markvörðinn Hlyn Örn Hlöðversson á láni frá Breiðabliki.

Hinn 22 ára gamli Hlynur var á láni hjá Fram á síðasta tímabili en þá lék hann sextán leiki í Inkasso-deildinni.

Hlynur spilaði fyrri hluta sumars 2016 með Grindavík í Inkasso-deildinni en hann hefur einnig leikið með KF, Tindstóli og Augnabliki.
Þá á Hlynur bæði landsleiki að baki með U19 og U17 ára landsliði Íslands.

Hann á að koma í markið hjá Njarðvík í staðinn fyrir Hörð Fannar Björgvinsson. Hörður er á leið í nám erlendis og treysti sér því ekki í að leika með Njarðvík en hann fór í síðustu viku í Álftanes á láni.

Komnir:
Helgi Þór Jónsson frá Víði Garði
Hlynur Örn Hlöðversson frá Breiðabliki á láni
Sigurbergur Bjarnason frá Keflavík
Unnar Már Unnarsson frá Víði Garði

Farnir:
Brynjar Atli Bragason í Víði á láni
Gualter Aurelio Oliveira Bilro til Portúgal
Hörður Fannar Björgvinsson í Álftanes á láni
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.