Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. mars 2021 08:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hodgson brjálaður yfir breyttri dagsetningu á leiknum gegn Man Utd
Mynd: Getty Images
Roy Hodgson er bálreiður yfir því að viðueign Crystal Palace og Manchester United hafi verið flýtt þar sem United er að spila í enska bikarnum.

Leikurinn átti upprunalega að fara fram 20. mars en fer fram núna á miðvikudag.

Hodgson segir að Wilfried Zaha missi því af leiknum sem eru slæmar fréttir fyrir Palace þar sem Zaha er þeirra langbesti leikmaður.

„Leiknum er þrýst á okkur og við erum ekki sáttir við það, sérstaklega þegar margir hjá okkur eru fjarri góðu gamni. Svo fáum við þriggja vikna frí þegar við þurfum alls ekki á því að halda. Ég hefði viljað halda leiknum þar sem hann var en þetta er hluti af því að vera í úrvalsdeildinni, þeir sem hafa völdin vildu færa leikinn og stundum hentar það liðum en stundum ekki," sagði Hodgson.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner